Búlgaríuferð!
08.09.2006 14:39:08 / Ferðaráð

Enn af solbadsdyrkendum

Nu er farid ad syttast i annan edann a tessa ferd hja okkur, forum heim eftir 4 daga. I morgun for taeplega helmingur hopsins i tveggja daga ferd til Istambul undir dyggri forystu Unnars. Eru tau vaentanleg til baka um midnaetti annad kvold og hafa frettir fra hopnum verid mjog jakvaedar.

I gaerkvold forum vid oll saman ut ad borda a stad sem heitir Picadilly. Tar var bodid upp a 8 retti, franskar kartoflur, bulgarskt hvitlauksbraud og svo 6 hefdbundna bulgarska retti, mest kjuklingur og svinakjot. Maturinn var alveg einstaklega godur og foru allir pakksaddir ut.

Fyrr um daginn vorum vid med bekkjarkeppni i nokkrum greinum. Strandblakid var ansi spennandi og spiladu vaentanlegur 4X vid 4T i urslitum, med naumum sigri 4X. Svo var keppt i uppstillingum og su keppni var aesispennandi. Hana vann 4T, en thau logdu mikinn metnad i sina uppstillingu, buin ad aefa sig og hanna uppstillinguna uppi a hoteli daginn adur. I theim bekk eru margar fimleikadomur sem stjornudu thessu med hardri hendi. Myndir koma sidar. Ad uppstillingarkeppninni lokinni var hlaupid nidur i flaedarmal og keppt i sandkastalabyggingu. Bekkirnir fengu 20 minutur i verkid og utkoman var storglaesileg. Matti sja skjaldboku-kastala, krokadil, Gamla skola og fleiri kastala. Erfitt var ad daema tha keppni og voru thvi sigurvegararir nokkrir. Thessi keppni tokst med eindaemum vel og mikill keppnisandi gerdi vart vid sig.

Vedrid undanfarna daga hefur verid algjor draumur i dos. Heidskyrt og passlega heitt, e.t.v. um 25 gradur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 22:18:35 / Ferðaráð

Meiri frettir...

Jaeja, her kemur faersla numer tvo fra okkur kennurum. Her gengur allt agaetlega og flestir sattir vid sig. Reyndar kvarta nemendur nokkud yfir vedrinu og hafa hugsad ser ad fara i brunkuklefa vid heimkomu. Her var skyjad og rigning i dag og bara bysna kalt. Vonandi fer thad ad skana.

Margir lagu i ruminu i gaer med magakveisu en eru ad koma til. Unnar hefur verid duglegur ad draga folk i hreyfingu og foru 7 nemendur med honum ut ad skokka i morgun klukkan 8 og nokkrir i fyrradag og er stefnan ad gera morgunskokkid ad daglegum vidburdi.

A morgun eru nokkrir nemendur ad fara i verslunarferd til Varna, en ferdaskrifstofan bydur upp a tha ferd. Annad kvold aetlum vid oll ad hittast a stad sem synir leik Islands og N-Irlands og kannski fara i keilu ;o) Istanbul ferdin er svo um naestu helgi.

Skrifum meira seinna,

Kennarar


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 10:19:26 / Ferðaráð

Komin i solina!

Ta erum vid komin a leidarenda. Komum a hotelid um kl 5 i nott ad bulgorskum tima. Tad var 1 og 1/2 tima seinkun a fluginu svo ad vid bidum frekar lengi a flugvellinum. Ferdin gekk ad mestu vel og eru mis syfjadir menntskaelingar farnir ad sleikja solina.

Yfir og ut.
Kennarar


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 21:12:15 / Ferðaráð

Aðeins 3 dagar!

Bara þrír dagar í brottför og eflaust margir farnir að telja niður klukkustundirnar! Þess vegna settum við hér inn nýjan tengil til vinstri: "grunnorðaforði í búlgörsku". Þar getið þið t.d. lært að bjóða góðan daginn og þakka fyrir ykkur á búlgörsku;) Endilega kíkið á þetta til að stytta ykkur stundir...
Svo er tilvalið fyrir ykkur að kíkja á apollo.is og lesa ykkur til um Búlgaríu, þ.e. ef þið eruð ekki búin að því nú þegar. Þið getið líka lesið ykkur til um hvaða kynnisferðir eru í boði þarna úti og séð hvað þær kosta.

Ferðaráð


» 24 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 11:26:57 / Ferðaráð

Farsímar

Var að heyra að OgVodafone símar virki ekki mjög vel í Búlgaríu en Síma síma er hægt að nota. Þó er mjög dýrt að hringja úr þeim heim en hægt er að kaupa símkort fyrir símklefa og hringja þannig heim. Eða náttúrulega bara fara á netkaffi.

Kv.
Anna


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 13:38:04 / Ferðaráð

Síðasti pistillinn...

Jæja, þá er komið að nokkrum lokaupplýsingum frá okkur kennurum.

  • Skv. öryggisgæslunni á flugvellinum eru engar takmarkanir á dóti í handfarangri eins og í Bandaríkjaflugum. Það má s.s. vera með raftæki og vökva. Reynið samt að takmarka handfarangur til að flýta fyrir leit í öryggishliði.
  • Anna og Valgerður verða komnar út á flugvöll ca 4 tímum fyrir flugið til að afhenda flugmiða. Þeir sem eru saman á herbergi verða saman á miða og þurfa að tékka sig inn saman.
  • Munið að taka með ykkur: Vegabréf, kreditkort, sólarvörn og upplýsingablaðið sem við létum ykkur fá í vor (algjört möst)
  • Berið á ykkur meira en minna af sólarvörn til að byrja með. Það er leiðinlegt að brenna! Þið verðið brún þó þið setjið mikla sólarvörn!
  • Fylgist vel hvort með öðru þarna úti og forðist að vera ein á ferð.
  • Ekki sýna sölumönnum áhuga nema þið hafið áhuga, forðist þá annars.
  • Passið vel upp á dótið ykkar (s.s. myndavélar og veski), aldrei leggja það frá ykkur.
  • Verið bara með smá pening á ykkur á daginn, geymið restina af peningum, kort og vegabréf í öryggishólfi á hótelinu.
  • Ferðalagið er langt og til að forðast vesen haldið ykkur þá við óáfenga drykki þar til við komum til Búlgaríu.
  • Ódýrara getur verið að kaupa símkort (fyrir símklefa) í Búlgaríu og hringja þannig heim.
  • Símanúmerin okkar kennaranna eru á blaðinu sem þið fenguð frá okkur í vor, endilega vistið þau inn í símana ykkar. Munið svo að fylgjast vel með upplýsingatöflunni á hótelinu.
  • Síðast en ekki síst:  Skemmtið ykkur vel!

Hafið endilega samband ef þið hafið einhverjar spurningar!

Kv.
Anna

Aquapark - stutt frá okkur!


» 19 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 13:00:19 / Ferðaráð

Varðandi vegabréf

Heil og sæl

Við rákumst á þessa frétt á heimasíðu Apollo

Vegabréf Búlgaríufara

Almenna reglan er sú að vegabréf skulu gilda 6 mánuði fram yfir komudag til Búlgaríu en skv. upplysingum frá sendiráði Búlgaríu á Íslandi (staðsett í Osló) nægir að vegabréfin gildi 3 mánuði fram yfir komu til Búlgaríu. Þetta gildir um farþega sem koma í beinu leiguflugi frá Íslandi.

Ég hringdi á Apollo og þar sagði mér kona að þau gætu verið ströng á þessu þarna úti, þannig að þið skulið endilega athuga vegabréfin ykkar. Það er þá tvennt í stöðunni, að fá nýtt vegabréf með hraðafgreiðslu (svolítið dýrt) eða e.t.v. að fá framlengingu í eitt ár.

Tjekkið á þessu, látið berast,

Valgerður


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 08:28:22 / Ferðaráð

Allt um rúturnar...

Jæja þá er skráningu í rúturnar lokið og þetta er allt saman komið á hreint. .

Rútan fer frá heimavistinni, þann 29. ágúst og það er mæting kl. 08:30!!

Það er ekki posi eða neitt svoleiðis svo að þið verðið að vera með pening á ykkur.
Fyrir þá sem ætla að koma uppí í Borgarnesi þá stoppar rútan í Hyrnu og við verðum líklega þar á milli 13:00 og 14:00. (líklega best að vera bara í símasambandi við einhvern sem er í rútunni ef þið viljið nákvæmari tímasetningu )
Fyrir þá sem ætla svo að koma upp í Reykjvík, þá stoppar rútan við Esso Ártúnshöfða og það er eins, líklega best að hringja í einhvern í rútunni til að vita nákvæmlega klukkan hvað.

Hérna eru svo verðin:
Keflavík - Akureyri                          = 3000 kr
Akureyri - Keflavík - Akureyri         = 4200 kr
Varmahlíð - Keflavík                        = 2000 kr
Varmahlíð - Keflavík - Varmahlíð     =3500 kr
Borgarnes - Keflavík                        = 1200 kr
Borgarnes - Keflavík - Borgarnes     = 2600 kr
Reykjavík - Keflavík                        = 1000 kr
Reykjavík - Keflavík - Reykjvík       = 2200 kr

Munið svo bara að vera með pening á ykkur til að borga !

kv. Ferðaráð


» 14 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 20:13:09 / Ferðaráð

Rútur

Minnum á að síðasti séns til að skrá sig í rútur er núna, þriðjudag 15. ágúst!

Sendist á 23sat@ma.is


» 25 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 13:10:43 / Ferðaráð

Nokkur heilræði

Sæl öll !

Ég spjallaði við Sigurlaugu í gær en hún var einmitt í Búglaríu um daginn. Hún var reyndar ekki á sama stað og við förum á heldur á öðrum svona túristastað sem heitir Golden Beach. Hún fór líka til Nesebar sem er rétt hjá okkar strönd og eigum við örugglega eftir að heimsækja þann stað. Hún lét vel af dvölinni og var hin ánægðasta með þetta allt saman. Hún gaf mér nokkur ráð sem mig langar að koma áfram til ykkar.

Það fyrsta sem hún nefndi voru peningar. Hún sagði að almennt væri ekki hægt að borga með korti á veitingastöðum, verslunum og öðrum slíkum stöðum. Hún sagði þó að hraðbankar væru víða og því ekkert mál að verða sér út um peninga. Það er ekki hægt að kaupa levur (Búlgarski gjaldmiðillinn) í bönkum hérna en í Bankastræti 2 (sama hús og Lækjarbrekka) er eitthvað sem heitir Forex Bank AB þar sem hægt er að kaupa levur. Þar er einnig hægt að skipta levum aftur í krónur án endurgjalds ef sýnd er kvittun fyrir því að þar hafi verið keyptar levur. Ég ráðlegg því þeim sem mögulega geta komið við þarna (eða sent einhvern fyrir sig) að kaupa smá levur svo að það myndist ekki 150 manna biðröð við hraðbankann á flugvellinum! (Þó geta vitanlega ekki allir verið búnir að útvega sér levur áður en út er komið og það er allt í góðu lagi!)

Við viljum því ráðleggja ykkur að ganga ekki alltaf með kortið á ykkur heldur eingöngu þann pening sem þið reiknið með að nota þann daginn. Það er gott að geyma restina af peningunum, kortin og vegabréfið í læstum skáp á hótelinu.

Annað sem hún nefndi voru vasaþjófar. Hún sagði að þeir væri fljótir að hrifsa til sín það sem maður leggur frá sér. T.d. ef þið eruð að skoða í búðum og viljið máta er ekki ráðlegt að leggja frá sér t.d. myndavél, veski eða annað á meðan því þá getur það fljótt horfið. Miklu skynsamlegra er að biðja einhvern úr hópnum að geyma fyrir sig dótið á meðan, því auðvitað áttu þið aldrei að ferðast einsömul ;)

Sigurlaug var mjög ánægð með ferðina, sagði frá skemmtilegum götumörkuðum og sagði að maturinn hefði verið mjög góður. Rétt hjá hennar hóteli var góð sandströnd og á vefsíðu hótelsins okkar stendur að það séu 400 metrar í ströndina (ca 10 mín) og 200 metrar í miðbæ. Mér sýnist við því vera vel staðsett.

Jæja, nóg í bili. Við kennararnir látum heyra frá okkur aftur þegar styttra er í ferðina.

Kveðjur

Anna

p.s. hérna er mynd af sundlauginni á hótelinu okkar!! Eru þið ekki orðin spennt?


» 24 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 16:29:44 / Ferðaráð

allir búnir! :)

Jæja þeir sem ætla að borga hafa borgað! :D

Minnum á að skrá í rútur fyrir 15. ágúst!

...Búlgaría here we come..8)


» 32 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 20:26:07 / Ferðaráð

Síðasti séns!

Eftirtaldir eiga eftir að borga ferðina!

Þið verðið að borga fyrir hádegi á morgun, þriðjudag. Eftir það verður nafnið ykkar strikað út og listinn sendur út.

Ekki ætlið þið að missa af útskriftarferðinni ykkar..?

Ágústa Snorradóttir

 

Eyjólfur Unnarsson

Eydís Kristjánsdóttir

Hrafnhildur Björnsdóttir

Jóhanna G Jóhnnesdóttir,

Jón Björn Vilhjálmsson,

Kristján E Kristjánsson

Oddný Lára Guðnadóttir

Petra Sólveig Petursdottir

Sæþór Tryggvason 


» 21 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 16:06:21 / Ferðaráð

BORGA!

 ...Þeir sem eiga eftir að borga ferðina eiga að gera það NÚNA!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 01:12:59 / Ferðaráð

Kæru Búlgaríufarar

Nú er farið að styttast í brottför til Búlgaríu. Allir eru ábyggilega orðnir spenntir en eflaust eru aðrir komnir með smá hnút í magann. Þess vegna viljum við kennarar árétta við ykkur nokkra hluti. 

Á ferðalögum, hvar í heiminum sem er, þarf að bera virðingu fyrir menningu og fólki landsins sem er heimsótt og laga sig að aðstæðum og venjum á staðnum. Í Búlgaríu er málum dátlítið öðruvísi háttað en hér á Íslandi og því þurfum við að hegða okkur sem best. Á öllum svona ferðamannastöðum gilda ákveðnar óskrifaðar reglur sem fara þarf eftir til að komast hjá óþægindum eða veseni. Margar þeirra eru á bréfinu sem þið fenguð á fundinum í vor en hér eru nokkrar til að rifja upp:

 

  •  Þið skuluð alltaf ferðast nokkur saman, amk 2-3, sérstaklega á kvöldin.

  • Komið fram við heimamenn með virðingu og kurteisi. Látalæti á götum úti (sérstaklega við lögrelgumenn) eru ávísun á vandræði.

  • Aldrei vera með öll egg í sömu körfu, þ.e. ekki vera með á ykkur bæði alla peningana og kortin á sama tíma. Verið heldur ekkert að veifa peningum að óþörfu niðri í bæ. Skiljið allt það sem þið mögulega getið eftir á hótelherbergi. Ekki er nauðsynlegt að vera með vegabréf á sér nema á ferðadögum.

  • Varið ykkur á götusölum, þeir eru mjög uppáþrengjandi. Ef þið hafið ekki áhuga á vörum þeirra skulu þið ekki virða þá viðlits.

  • Hugsið vel um ykkur. Drekkið vel af vatni, hugsið um að borða reglulega og farið passlega gætilega í drykkjuna. Passið að bera á ykkur sólarvörn oft á dag (því auðvitað verður geggjað veður!)

Mikilvægast er þó að hafa gaman af þessu öllu því við höfum fulla trú á að þið eigið eftir að standa ykkur vel þarna úti, skemmta ykkur rosalega vel og vera skólanum og landinu til sóma. Það er engin ástæða til að óttast þennan stað, það sem getur komið fyrir þarna getur komið fyrir á hvaða ferðamannastað sem er.  Við vonum að þið séuð farin að hlakka jafn mikið til ferðarinnar og við, sjáumst hress í Keflavík!   

Kveðjur

Anna, Unnar og Valgerður




» 15 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 21:26:45 / Ferðaráð

Rútur

Hæ hæ!

Jæja þá eru það rútu hugleiðingar.. SBA hefur gert okkur tilboð og mun farið, fram og til baka kosta 4200 kr. á mann. Ef að fólk vill bara fara aðra leið eru það 3000 kr.
Síðan verður líka sá möguleiki að koma upp í rúturnar á leiðinni en við þurfum samt helst að reyna að halda svoleiðis löguðu í lágmarki þar sem SBA vill ekki þurfa að leggja af stað frá Ak. með hálftómar rútur. En ef að væri komið upp í rútuna í Varmahlíð væri verðið 2000 kr fyrir aðra leið og 3500 kr fyrir báðar og í Borgarnesi væru það 1200 kr fyrir aðra leið og 2600 fyrir báðar. Ef að einhver kemur upp í í Rvk er verðið 1000 kr.

Brottför frá Keflavík þann 29. ágúst er áætluð kl. 18 þannig að rútan færi líklega af stað snemma um morguninn og ekið yrði beint á völlinn. Á heimleiðinni verður lent í Keflavík um kl. 17 og við færum beinustu leið norður (ættum að koma á áfangastað skömmu eftir miðnætti).

Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta senda póst á Snædísi, 23sat@ma.is fyrir 15. ágúst og taka fram þar hvort þeir vilji báðar leiðir, eða aðra, og þá hvora þeir vilja! Ath, það er 100% bindandi!

Við mælum með því að þið takið rútuna því eftir tveggja vikna djamm hafa fáir orku til þess að keyra norður ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2